|
Æfingatafla allra yngri flokkanna
|
17.08.2008 20:18:47 / tindastoll6fl
Jæja þá er tímabilinu lokið hjá 6. og 7. flokk kvenna. Það verður núna pása í fótboltanum þangað til um miðjan september. Þannig að það er ekki æfing á morgun. Ég vona að sem flestir haldi áfram að æfa í vetur  Þjálfaramálin fara síðan að skýrast og verða þau auglýst þegar það er komið á hreint  Kveðja, Inga Jóna
»
10.08.2008 17:31:39 / tindastoll6fl
Jæja þá er Króksmótið búið. Ég vil þakka öllum fyrir frábæra helgi  Þið stóðuð ykkur allar mjög vel og skiptir það mestu máli. Það eru ekki æfing á morgun, mánudag en það er æfing á þriðjudag á sama tíma og venjulega upp á Nöfum. Við klárum þessa viku og verður þetta létt og skemmtileg vika. Hlakka til að sjá ykkur stelpur!  Kveðja, Inga Jóna
»
08.08.2008 11:14:21 / tindastoll6fl
Liðin á Króksmótinu 2008 í 6.flokki TindastólsJ Í 6. Flokkmótinu í ár verðum við með 3 lið frá Tindastól. Við erum skráð með 3 lið og eru þau í kvennaliðs keppninni. Liðsstjórar verða með hverju liði fyrir sig og síðan reyna þjálfararnir að ganga á milli og hjálpa sem flestum liðum. Öll liðin eiga að mæta á laugardagsmorguninn kl 08.30 á syðsta völlinn við Íþróttahúsið í skrúðgöngu. Þar munu þau síðan hitta sína liðsstjóra og fylgja sínu liði. Ég vil minna foreldra á að fylgjast með heimasíðunni okkar og sjá þar leikjaplan fyrir sín börn. www.tindastoll.is og síðan velja fótbolti og þá króksmót. Svona verða hins vegar liðin á þessu móti. Tindastoll 1: Brynja, Elínborg, Kolbrún, Kristrún, Ester, Fanney, Hugrún Ása. Tindastoll 2: Þórdís Stella, Elín, Selma Björt, Linda Þórdís, Halla Sigríður, Ingunn, Hrafnhildur, Gunnhildur. Tindastoll 3: Kolfinna, Dagmar, Ástrós, Berglind Ýr, Jóna María, Nótt Þórunn, Sunneva, Bríet.
Ef að það er einhver sem að við erum að gleyma þá biðjumst við velvirðingar á því og endilega látið vita svo að við getum bætt úr því hið snarasta.
Þeim sem vantar keppnisbúninga geta nálgast þá á milli kl 12 og 13 núna í dag (föstudag) á skrifstofu Tindastóls að Víðigrund 5.
Kveðja, Inga Jóna (867-8675)Sjáumst hress á laugardagsmorguninn kl 08.30
»
22.07.2008 23:46:51 / tindastoll6fl
Eins og ég talaði um í síðasta bloggi hefur KA boðið stelpunum á æfingu næsta þriðjudag. Þeir hafa sent mér drög að dagskrá fyrir stelpurnar. Þeir minnast ekkert á landsliðskonu í þeirri dagskrá en ég vona að af því verður. Þeir eru sem sagt að bjóða öllum stelpum í 6. og 7. flokk stelpna á Norðurlandi að koma á sameiginlega æfingu. Hugmyndin hjá þeim er að skipta liðunum í 2-3 hópa eftir aldri.
Uppkast af dagskrá: Kl. 11:00-12:00 Æfing -Settar upp stöðvar og stelpunum skipt niður 12:00-13:00 Stelpurnar fá hressingu og horft verður á video 13:00-14:00 Lfing þar sem verður skipt niður í lið og spilað Upp úr kl. 14:00 verður grill handa stelpunum og aðstandendum þeirra.
Þjálfarar hjá KA verða með æfinguna ásamt öðrum þjálfurum á Norðurlandi sem vilja taka þátt í þessari æfingu.
Þær stelpur sem hafa áhuga á að fara eru beðnar um að skrá sig hér á blogginu eða í tölvupósti til mín (ingajonas (hjá) simnet.is).
Samkvæmt upplýsingum sem ég fékk sent frá KA þá kostar þetta ekkert fyrir stelpurnar og þetta er góð tilbreyting á sumrinu fyrir þær. Stelpurnar þurfa sjálfar að komast á staðinn og því væri tilvalið ef einhverjir geta keyrt stelpurnar og farið þá jafnvel nokkrar saman.
Hvað mótið varðar á Húsavík þá finnst mér ólíklegt að af því verði. Ég hef ekkert heyrt meira frá þjálfaranum og ekkert hefur verið sent til Tindastóls um það. En Króksmótið er síðan 2 helgina í ágúst og þar eru stelpurnar velkomnar að keppa.
Kveðja, Inga Jóna
»
16.07.2008 22:18:02 / tindastoll6fl
Þar sem það er ekki auðvelt að hitta á foreldra hef ég ákveðið að setja þetta á bloggið. Málið er að þjálfari Völsungs og KA hafa haft samband við mig í vikunni varðandi mót og æfingu. KA þjálfarinn var að kanna hvort það væri áhugi hjá okkur í 6.fl að hafa sameiginlega æfingu síðasta þriðjudag í mánuðinum. Hann myndi reyna að fá landsliðskonu til að hafa æfinguna og fleiri lið af norðurlandi til að mæta. Er áhugi hjá foreldrum fyrir þessu? Einnig hafði þjálfari Völsungs samband við mig og spurði hvort við hefðum áhuga á að koma á lítið mót hjá Völsung síðustu helgina í júlí. Þangað myndu koma lið af norðurlandi til að spila. Er áhugi hjá foreldrum fyrir þessu, annað hvort báðum, öðru eða hvorugu? Endilega kommenta hér og láta þetta ganga á milli svo ég geti séð hvort að það sé áhugi fyrir þessu  Það var ekki talað um neinn kostnað við mig um þessa æfingu eða mót, skilst að þetta sé gert til að stelpurnar fái að spila meira. Kveðja, Inga Jóna
»
13.07.2008 20:53:07 / tindastoll6fl
Þá er Símamótið búið og stóðu allar sig mjög vel  Takk fyrir frábæra helgi bæði foreldrar og þátttakendur  Þar sem helgin er búin að vera löng og erfið fyrir margar er frí á morgun á æfingu. Notið tímann og hvílið ykkur vel eftir helgina  Kveðja, Inga Jóna
»
09.07.2008 22:52:51 / tindastoll6fl
Ég fékk tölvupóst í dag um að lið hafa verið að draga sig úr keppni og því er þetta ekki staðfest leikjaniðurröðun. Það var ekki tekið fram hvaða lið eða hvaða flokkur en leikjaniðurröðun ætti að koma inn í kvöld eða strax í fyrramálið.
Endilega láta þetta berast til flestra þannig að allir viti þetta.
Liðin á mótinu eru eftirfarandi: A: Kolbrún Ósk, Kristrún María, Unnur Rún, Malen, Gunnhildur, Hrafnhildur, Bríet Lilja. B: Selma Björt, Ástrós, Elín, Linda Þórdís, Berglind Ýr, Hugrún Ása, Ester, Sunneva, Brynja.
Ég vil minna á að veðurspáin er ekki sú besta og koma því vel klædd. Það er síðan mæting 45 mín fyrir fyrsta leik á mótinu.
Kveðja, Inga Jóna
»
03.07.2008 20:18:25 / tindastoll6fl
Lið á hnátumót eru: A: Kolbrún Ósk, Jóna María, Hugrún Ása, Gunnhildur, Vigdís Edda, Bríet Lilja, Hrafnhildur. B: Laufey Harpa, Þórdís Stella, Fanney Rós, Brynja Sif, Ástrós Eva, Sunneva, Ingunn.
Það eru sem sagt 7 í hvoru liði og engir varamenn. Þetta voru þær sem létu vita að þær kæmu og vona ég að ég sé ekki gleyma neinni.
Það er lagt af stað kl. 9 frá Vallarhúsinu.
Kveðja, Inga Jóna
»
03.07.2008 12:21:09 / tindastoll6fl
Það styttist núna í Símamótið sem er haldið í Kópavogi. Það er hægt að nálgast upplýsingar um það hér. Það hafa nokkrar látið mig vita að þær fari á símamótið en ekki allar. Þær fá miða heim í dag þar sem foreldrar geta skráð barnið. Ef það er skrifað hér á síðuna vil ég að það sé tekið einnig fram hvort þær séu í mat og/eða gistingu. Við erum skráð 2 lið í 6. flokki kvenna á mótið. Ég vil síðan minna á foreldra fundinn sem verður haldinn næsta þriðjudag fyrir þær sem fara á Símamót. Hnátumótið er síðan á sunnudag. Það verður einnig sendur miði heim um það í dag. Það er mæting í Vallarhúsið kl. 9 og verður Arnar Skúli og Snæbjört með liðin. Ég kemst ekki á sunnudag. Endilega kvitta hér ef barninu vantar far og einnig hvort þið getið keyrt. Kveðja, Inga Jóna
»
29.06.2008 20:06:38 / tindastoll6fl
Eitt mót búið og annað tekur við. Hnátumót er sem sagt annað orð yfir Íslandsmót hjá 6. fl. kvenna. Það eru 4 leikir hjá A-liði og 3 leikir hjá B-liði. Mótið er haldið á Siglufirði og fyrsti leikur er kl. 11:00. Síðasti leikur er svo kl. 15:00 hjá A-liði og 13:30 hjá B-liði. Stelpurnar fá miða heim í vikunni og þær sem geta spilað spila. Ég er að láta vita seint og biðst ég afsökunar á því. Leikjaniðurröðun er hér fyrir neðan: Leikir: sun. 06. júl. 11:00 Hnátumót A-lið NL Siglufjarðarvöllur Tindastóll - Völsungur sun. 06. júl 11:30 Hnátumót B-lið NL Siglufjarðarvöllur Tindastóll - KA sun. 06. júl 12:00 Hnátumót A-lið NL Siglufjarðarvöllur Þór - Tindastóll sun. 06. júl 12:30 Hnátumót B-lið NL Siglufjarðarvöllur Þór - Tindstóll sun. 06 júl 13:00 Hnátumót A-lið NL Siglufjarðarvöllur Tindastóll - KA sun. 06 júl 13:30 Hnátumót B-lið NL Siglufjarðarvöllur Tindastóll- KA sun. 06 júl 15:00 Hnátumót A-lið NL Siglufjarðarvöllur KS - Tindastóll Það er síðan æfing næstu 2 daga (miðvikudag og fimmtudag) á grasinu hjá íþróttahúsinu.
Takk fyrir æðislegt mót.
Kveðja, Inga Jóna
»
26.06.2008 12:36:25 / tindastoll6fl
Þá er komið að Landsbankamótinu okkar góða. Mótið byrjar núna á laugardagsmorguninn 28. júní en ekki er endanleg niðurröðun leikja tilbúin, þannig að við viljum benda fólki á að kíkja á heimasíðu Tindastóls til þess að vita hvenær á að mæta. Sem sagt, Tindastoll.is síðan fótbolti, og þá Landsbankamót og síðan leikjaniðurröðun. Einnig er hægt að ýta hér. Allar stelpurnar sem eiga búning koma í þeim og spila í þeim, en þeim sem vantar búning geta nálgast þá í Vallarhúsinu á laugardagsmorguninn fyrir leik hjá sínu liði. Kostnaður við mótið er 2000 kr. eins og hefur verið undanfarin ár og verður það að greiðast til liðsstjóra viðkomandi liðs, fyrir fyrsta leik. Liðin verða kynnt á æfingu á eftir. Stelpurnar fá miða með sér heim með liðunum á. Það verða 2 lið frá Tindastól í 6.flokk kvenna. Kveðja, Inga Jóna 867-8675
»
24.06.2008 18:54:10 / tindastoll6fl
Það styttist nú enn meira í mót sumarsins. Núna um helgina er Landsbankamót hér á Sauðárkrók og 10.-13. júlí er Símamót. Ég þarf að gefa upp ca. fjölda fyrir Símamót og því væri ágætt ef þeir sem skoða þessa síðu gætu kommentað um hvort barnið þeirra komist eða ekki og hvernig gisting barnið verður í.
Kveðja, Inga Jóna
»
19.06.2008 12:29:25 / tindastoll6fl
Það styttist óðum í Landsbankamót, en það er haldið helgina 27. júní-29.júní á Króknum, og er margt sem þarf að gera fyrir það. Það er mikilvægt að sem flestir foreldrar geti mætt þar sem á fundinum verður farið yfir mótið. Ég vil hvetja sem flesta til að mæta og láta þessi skilaboð ganga þannig að flestir mæti. Stelpurnar fá miða heim eftir æfingu í dag um foreldrafund líka.
Fundur fyrir 5. fl kvk. er kl. 20:30 í vallarhúsinu. Fundur fyrir 6. fl. kvk. er kl. 20:00 í vallarhúsinu. Fundur fyrir 7. fl. kvk. er kl. 19:30 í vallarhúsinu. Það er mismunandi eftir flokkum hvaða hlutverk foreldrar fá og því hvetjum við enn og aftur flesta til þess að mæta og aðstoða ef þeir geta.
Kveðja, Inga
»
11.06.2008 12:27:50 / tindastoll6fl
Þar sem Sumar Tím er byrjað breytist æfingatíminn hjá 6. flokk í knattspyrnu. 6. flokkur æfir núna 4 sinnum í viku alltaf á sama tíma. Æfingarnar eru frá kl. 14:40-16:00 mánudaga til fimmtudaga.
Ég vona að ég sjái sem flesta á æfingum í sumar.
Kveðja, Inga Jóna
»
28.05.2008 22:22:40 / tindastoll6fl
Á morgun, fimmtudag, er foreldrafundur. Hann hefst kl. 19:45 hjá 6. fl kvenna og kl. 19:00 hjá 7. fl. kvenna. Það verður sendur miði heim á morgun og vonum við til þess að flestir sjái sér fært að mæta.
Kveðja, Inga Jóna
»
Síður: 1 2
|
|